4.9.2008 | 16:08
Íslensk pólitík í uppnámi
Það virðist vera alveg nýtt í íslenskri pólitík að ráðherra fari að lögum og sannfæringu sinni. „Lobbyistar“ eru gapandi hissa og hver mannvitsbrekkan á fætur annarri lýs afurðu sinni á að ekki skuli farin hin hefðbundna íslenska leið að virkja fyrst og spyrja svo. Hagsmunaðilar froðufella og hóta málsókn, því það kosti svo mikið ef hugsanlegar framkvæmdir dragist á langinn. Það eiga fjandakornið ekki allir að fara að lögum?! Hvenær skyldi svo staða Landsvirkjunarforstjórans verða auglýst?
Jafnvel leitað til dómstóla vegna úrskurðar ráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Staðan var auglýst um síðustu helgi, með heiti um að trúnaður verði haldinn, til að geta skipað einhvern sem er ekki hæfastur í starfið.
Gestur Guðjónsson, 4.9.2008 kl. 16:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.